Borghildur Fjóla Kristjánsdóttir, formaður Slysavarnafélagsins Landsbjargar, gaf okkur innsýn í starf sitt sem formaður. Hún fór yfir víðfeðmt starf félagsins, áskorunum í starfi og velti einnig fyrir sér framtíðinni, ekki síst í ljósi þess að 100 ára afmæli félagsins er á næsta leiti. Viðtalið var tekið upp í febrúar 2026.
Í síðari hluta þáttarins færum við okkur á Reykjavíkurflugvöllur í október 2025. Þar tóku Árni Birgisson og Friðfinnur Freyr Guðmundsson á móti okkur og sögðu frá flugslysaæfingu sem Isavia, björgunarsveitir og aðrir viðbragðsaðilar halda reglulega. Markmiðið er að skapa sem raunverulegastar aðstæður og undirbúningur er bæði umfangsmikill og krefjandi.